Forsíða



               

 Manneskjan á bakvið spámiðill.is er Hólmfríður Ásta Steinarsdóttir

 Reikimeistari  og Spámiðill en hún skartar einnig BA gráðu í Ensku og Diplómu í Jákvæðri Sálfræði og verður brátt Markþjálfi. (27.10.2026)

 Ástríða mín er að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft því þannig valdeflist það til sjálfstrausts og hamingju.

 


Ég hef spáð í spil frá því ég var unglingur og alltaf haft “þekkingu” sem ég vissi ekki hvaðan kom.

Ég Lærði Reiki 1 og 2 árið 1994 sem 18 ára ung kona með allskonar erfiða reynslu.

Ég lærði Reikimeistarann árið 2010 þegar ég fékk beiðnir um að læra reiki eftir að hafa komið til mín í meðferð.

Birgitta Halldórsdóttir Reikimeistari, bóndi og rithöfundur með meiru hefur verið minn meistari og fyrirmynd frá upphafi. Hún bókstaflega geislar af visku og ljósi og er endalaust að vaxa og þroskast, svo er hún líka svo ungleg í hjarta og út á við.

Mín ástríða er að kenna fólki að hjálpa sér sjálft og sú breyting sem verður á einu reikinámskeiði eru algjörir töfrar.

Reiki námskeiðin eru eins og þegar ég lærði reiki 2 dagar eða 3 hálfir dagar.

Það er munnleg, bókleg og verkleg kennsla á öllum stigum og hver nemandi á að labba út fullfær og þegar byrjaður að stunda sína sjálfsheilun.

Sjálfsheilun er ferðalag ekki skyndilausn.

En reiki er líka góð fyrsta hjálp við blæðingum,bólgum og áföllum.

Þú getur pantað reikimeðferð og Spámiðlun með reiki  á noona undir https://noona.is/holmfridurspamidillreikimeista

Þér er líka velkomið að hafa samband við mig í gegnum email reiki(at)simnet.is.

 

Mín saga sem spámiðill byrjaði með venjuleg spil sem fór svo út í Tarot spil þar sem ég tyndi bókinni og fór að reiða mig á innsæið.

Ég hef verið að spá opinberlega síðan ég var 20 ára eða um 30 ár. Ég starfaði á Örlagalínunni sem var spálína. Ég starfaði í Gjafir Jarðar og var þar með aðstöðu.

Ég starfaði einnig í Kærleikssetrinu í mjódd og var þar með aðstöðu fyrir heilun og spámiðlun. Ég bjó til þessa síðu spamidill.is 2010 og fór að spá í gegnum spjallbox og var frumkvöðull á því sviði. 

Ég hef lítið auglýst í gegnum tíðina en orðsporið og alheimurinn hefur fært fólk til mín

á þeim tíma sem þau og ég þarfnaðist þess.

Nú nýverið byrjaði ég með aðstöðu í Virago heilsusetur (sem er líka á noona) og þá vantaði mig auglýsingu og fékk þá skilaboð um hvort ég vildi spá fyrir íslandi í bítinu sem ég gerði.

https://www.visir.is/k/c16e6bfc-ac26-435f-9125-efdfe94d6995-1788771491615

Ofan á spámiðlunina og Reikiheiluna þá hef ég bætt við mig Diplómu í Jákæðu sálfræðinni þar sem lokaverkefni mitt er “þú ert þinn gæfusmiður” valdeflingar og sjálfstyrkingar námskeið og svo mun ég ljúka Markþjálfunarnámi í haust.

Ástríða mín til að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft hefur víkkað út og mun halda áfram að víkka.

 

Sjáðu fyrir þér liggjandi mann.. þú átt þrjá kosti

þú getur labbað framhjá og þóst ekki sjá, þú getur hjálpað viðkomandi á fætur, eða þú getur kennt viðkomandi hvernig hann getur reist sig við, eða aðstoðað viðkomandi í að finna sína eigin lausn í að standa upp með því að spyrja réttu spurningana.

persónulega myndi ég velja 3 kostinn því þá hefur viðkomandi leið til að hjálpa sér sjálfur þegar engin á leið hjá.

En umfram allt myndi ég byrja á því að spyrja ertu tilbúin í að vaxa?

 

Flettingar í dag: 439
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 1416
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 1379131
Samtals gestir: 95247
Tölur uppfærðar: 28.10.2026 05:16:58

Spáspjall